Hvar er Einhyrningurinn Minn - 5 Síðna Prentanlegur Þrautapakki
„Hvar er einhyrningurinn minn?“ er ævintýralegur 5 síðna þrautarpakki, sérsniðinn að börnum á aldrinum 5 til 10 ára sem elska einhyrninga og allt sætt!
Á hverri síðu er nýtt þema þar sem einhyrningurinn leitar að einhverju sérstöku.
Hjálpaðu einhyrningnum að finna:
- Gjöf
- Málningu
- Sólblóm
- Súkkulaði
- Systkini sitt
Það sem er á hverri síðu:
- 1 „Línuflækja“: Skemmtileg flækja af töfralínum.
- 2 Hefðbundin völundarhús: Klassískar, hlykkjóttar leiðir sem þarf að leysa.
- 1 Orðagáta: Heillandi heilabrjótur sem passar við þema síðunnar.
Hvað fylgir með í pakkanum:
- 5 útprentanlegar A4 síður (háupplausnar 300 DPI PDF skrár)
Fullkomið fyrir:
- Rökfræði og lausnamiðaða hugsun: Hjálpar börnum að efla rýmisgreind og rökfærni.
- Aukna einbeitingu: Línuflækjurnar eru frábærar til að æfa þolinmæði og nákvæmni.
- Skjálausar gæðastundir: Tilvalið í fríið, á veitingastaði eða bara í rólega stund heima við eldhúsborðið.
✨ Tafarlaust niðurhal
Prentaðu heima og byrjaðu leitina strax.
🎨 Handteiknað og sett saman af Unni Balla
Engin gervigreind (AI), bara skapað og sett saman af heimavinnandi mömmu.
Ertu hrifin/n af þessum síðum?
Skoðaðu fleiri fallega þrautapakka á íslensku hér.
Viltu styðja okkur í að búa til prentanlegt skemmtiefni?
Við bjóðum upp á allt prentanlegt GEFINS. Þú þarft aldrei að greiða fyrir prentanlegar síður nema þú viljir styðja okkur! Við gerum þetta þannig að sem flestir hafi aðgang að skapandi og skemmtilegum síðum!
Þú getur lesið meira um leiðir til að styðja The Given Garden hérna.